Opið fyrir umsóknir á Jazzahead!

 

Næsta hátíð: 11-13. Apríl 2024

Umsóknarfrestur: 18. Október 2023

Hvar? Bremen, Þýskaland

Áhorfendur: 20.000

Bransafólk: 3.500

Tónlistaratriði: 200

Tónlistartegundir:

Jazz:-)

 
 

Jazzahead! í Bremen er, eins og gefur að skilja, stærsta jazzráðstefna í evrópu, oft kölluð „The Family Reunion of Jazz“. Þar koma saman tónlistarmenn, útgáfufyrirtæki, auglýsingastofur, hátíðarframleiðendur, bókarar, útvarpsstöðvar, evil fjölmiðlafulltrúar og allskonar áhugafólk um jazz, í fjóra daga til að tengjast, uppgötva nýja hæfileika og njóta.

Yfir 200 atriði koma fram fyrir 20.000 áhorfendur, þar af 3.500 bransafólk.

Á tónleika hluta ráðstefnunnar koma fram nöfn djass senunnar koma fram ásamt upprennandi tónlistarfólk í senunni.

Showcase hátíðir (e. faghátíðir) eru frábrugðnar hefðbundnum tónlistarhátíðum þar sem stór hluti tónleikagesta eru fagfólk úr tónlistarbransanum og þær geta verið stökkpallur á alþjóðlegan tónlistarmarkað þegar vel er að staðið. Slíkar hátíðir eru mikilvægur liður í útflutningi á íslenskri tónlist.

Ef ætlunin er að koma tónlistarverkefni á framfæri á showcase hátíð er mikilvægt að kynna sér vel stefnu hverrar hátíðar og setja sér skýr markmið með þátttöku, einnig er nauðsynlegt að tónlistarverkefnið sé tilbúið til útflutnings (e. export ready).

Við mælum helst með því að tónlistarmenn sem fara inn á hátíðina taki með sér umboðsmann, eða amk einhvern sem getur sinnt því hlutverki á hátíðinni, sem getur talað ykkar á máli inn í bransann sem verður á staðnum.

 

Íslenskt tónlistarfólk sem er bókað á hátíðina getur sótt um ferðastyrk í Útflutningssjóð. Þið getið jafnframt haft samband við starfsfólk ÚTÓN ef það eru frekari spurningar um útflutningssjóð .

Við hvetjum ykkur til að skoða vel hvort að þáttaka í Jazzahead sé tímabær vettvangur fyrir ykkur. Ef svarið er já, þá viljum við endilega hvetja ykkur til að setja púður í þrusu-umsókn og sækja um. 

 
Iceland Music