Opið fyrir umsóknir á The Great Escape

 

Næsta hátíð: 15. - 18. Maí, 2024

Umsóknarfrestur: Febrúar, 2024

Hvar? Brighton, England

Tónlistartegundir:

Rokk, Alternative, Indie, Punk, Dance, Teknó, Raf og Hip Hop

 
 

The Great Escape er tónlistarhátíð þar sem 500 listamenn frá öllum heimshornum koma fram á 30+ stöðum víðs vegar um borgina og hátíðarsvæði á ströndinni, Brighton Beach.

Hátíðin er fyrir almenning að kynnast nýjustu uppáhalds tónlistinni sinni en einnig sóttur af bransafólki sem eru að leita að næsta “big thing” í tónlist. Þarna eru ráðstefnur samhliða tónleikunum þar sem fram koma áhugaverð pallborð, málefnalegar umræður, framsöguræður og nettækifæri.

Á hátíðinni má einnig finna leynilega tónleika, klúbbakvöld og sjálfsprottið samstarf þátttakenda.

Showcase hátíðir (e. faghátíðir) eru frábrugðnar hefðbundnum tónlistarhátíðum þar sem stór hluti tónleikagesta eru fagfólk úr tónlistarbransanum og þær geta verið stökkpallur á alþjóðlegan tónlistarmarkað þegar vel er að staðið. Slíkar hátíðir eru mikilvægur liður í útflutningi á íslenskri tónlist.

Ef ætlunin er að koma tónlistarverkefni á framfæri á showcase hátíð er mikilvægt að kynna sér vel stefnu hverrar hátíðar og setja sér skýr markmið með þátttöku, einnig er nauðsynlegt að tónlistarverkefnið sé tilbúið til útflutnings (e. export ready).

Við mælum helst með því að tónlistarmenn sem fara inn á hátíðina taki með sér umboðsmann, eða amk einhvern sem getur sinnt því hlutverki á hátíðinni, sem getur talað ykkar á máli inn í bransann sem verður á staðnum.

Íslenskt tónlistarfólk sem bókað er á hátíðina getur sótt um ferðastyrk í Útflutningssjóð. Þið getið jafnframt haft samband við starfsfólk ÚTÓN ef það eru frekari spurningar um útflutningssjóð .

Við hvetjum ykkur til að skoða vel hvort að þáttaka í Reeperbahn sé tímabær vettvangur fyrir ykkur. Ef svarið er já, þá viljum við endilega hvetja ykkur til að setja púður í þrusu-umsókn og sækja um. 

 
Iceland Music