Opið fyrir umsóknir á MENT

 

Næsta hátíð: 21-24. Febrúar 2024

Umsóknarfrestur: 1. September 2023

Hvar? Ljubljana, Slóveníu

Hversu margir mæta? 6000

Svið: 13

Tónlistartegundir:

Indí rokk, Pop, Electronic, folk, rokk, hip-hop og Dj sett

 

Tónlistarhátíðin MENT í Ljubljana, Slóveníu hefur opnað fyrir umsóknir, Hátíðin mun fara fram 21 - 24 Febrúar 2024. MENT er þriggja daga bransahátíð og showcase festival sem haldin er árlega í lok febrúar í Ljubljana. Hátíðin heldur utan um 13 svið þar sem um 70 tónlistarfólk koma fram og er ein stærsta hátíð sinnar tegundar í Evrópu.

Showcase hátíðir (e. faghátíðir) eru frábrugðnar hefðbundnum tónlistarhátíðum þar sem stór hluti tónleikagesta eru fagfólk úr tónlistarbransanum og þær geta verið stökkpallur á alþjóðlegan tónlistarmarkað þegar vel er að staðið. Slíkar hátíðir eru mikilvægur liður í útflutningi á íslenskri tónlist.

Ef ætlunin er að koma tónlistarverkefni á framfæri á showcase hátíð er mikilvægt að kynna sér vel stefnu hverrar hátíðar og setja sér skýr markmið með þátttöku, einnig er nauðsynlegt að tónlistarverkefnið sé tilbúið til útflutnings (e. export ready).

Við mælum helst með því að tónlistarmenn sem fara inn á hátíðina taki með sér umboðsmann, eða amk einhvern sem getur sinnt því hlutverki á hátíðinni, sem getur talað ykkar á máli inn í bransann sem verður á staðnum.

Íslenskt tónlistarfólk sem bókað er á hátíðina getur sótt um ferðastyrk í Útflutningssjóð. Þið getið jafnframt haft samband við starfsfólk ÚTÓN ef það eru frekari spurningar um útflutningssjóð .

Við hvetjum ykkur til að skoða vel hvort að þáttaka í Reeperbahn sé tímabær vettvangur fyrir ykkur. Ef svarið er já, þá viljum við endilega hvetja ykkur til að setja púður í þrusu-umsókn og sækja um. 

Iceland Music