Glærur frá fræðslukvöldi um stafræna dreifingu
Á þessu fræðslukvöldi var fjallað um stafræna dreifingu. Á meðal fyrirlesara voru Trond Tornes markaðsstjóri Phonofile sem kynnti þjónustu Phonofile (sem sinnir sama hlutverki og þjónustur á borð við Orchard, Believer, AWAL, Finetunes og Tunecore) og aðra möguleika sem tónlistarmenn hafa til að dreifa tónlist sinni og Daddi Guðbergsson kynnti þjónustu Grapewire.net.
Leitast var við að svara spurningum s.s. hvernig kem ég tónlistinni minni á iTunes, Amazon og fleiri netveitur sem selja tónlist og einnig á streymiþjónstur á borð við Spotify sem hefur 10 milljón notendur? Hvernig fá tónlistarmenn greitt frá erlendum netveitum og streymiþjónustum? Hvaða þjónustur standa í boði til að dreifa tónlistinni á netinu? Eiga tónlistarmenn að notast við einn þjónustuaðila eða fleiri? Þá voru hringborðsumræður þar sem Ólafur Arnalds, tónlistarmaður, ásamt Trond Tornes og Dadda Guðbergssyni tóku þátt í fjörugri umræðu við þátttakendur um þetta áhugaverða efni.