ÚTÓN ýtir úr vör verkefni um starfsþjálfun umboðsmanna
Tveir styrkir verða veittir til umboðsmanna (eða verðandi umboðsmanna) sem hafa áhuga á að komast að hjá fyrirtæki í Bretlandi til að efla þekkingu sína á tónlistarviðskiptum.
Í stefnumörkun ÚTÓN árið 2010 kom fram að skortur væri á íslenskum umboðsmönnum sem hefðu góða þekkingu á alþjóðlegum tónlistarviðskiptum. ÚTÓN greindi í framhaldinu hvaða leiðir mætti fara til að bæta úr þessu og leitaði til Leonardo (starfsmenntaáætlunar Evrópusambandsins) til að afla stuðnings við þá sýn að koma íslenskum umboðsmönnum eða verðandi umboðsmönnum í tengsla- og starfsumhverfi sem myndi gagnast þeim.
Í maí sl. var tilkynnt um að ÚTÓN hlyti styrk fyrir verkefninu frá Leonardo. Sú niðurstaða ásamt stuðningi Landsbankans, sem hefur verið bakhjarl fræðslustarfs ÚTÓN undanfarin þrjú ár, þýðir að hægt er að bjóða tvo einstaklingsstyrki til starfsþjálfunar hjá breskri umboðsskrifstofu í allt að 10 vikur. Þátttakendur fá styrk fyrir ferðakostnaði, leigu á húsnæði og uppihaldi á meðan starfsnáminu stendur sem nemur 2.058 evrum fyrir fyrstu tvær vikurnar og 235 evrur á viku eftir það. Samtals nemur hvor styrkur 3.938 evrum (um 635 þús. kr á gengi 7. júní 2012).
Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi reynslu úr tónlistargeiranum s.s. af umboðsmennsku, markaðsstörfum, tónleikahaldi og/eða plötuútgáfu. Þeir sem sækja fyrirhugað fræðslukvöld ÚTÓN um umboðsmennsku í september 2012 munu hafa forgang fram yfir aðra umsækjendur.
Þátttakendur þurfa að skila tveimur skýrslum; einni á meðan á dvölinni stendur og síðan lokaskýrslu að starfsþjálfuninni lokinni. Þá verður einnig farið fram á að þeir komi þekkingu sinni áleiðis á völdu fræðslukvöldi ÚTÓN eftir að starfsþjálfun lýkur.
ÚTÓN er í samstarfi við UK Music um þetta verkefni og hefur þegar rætt við tvær umboðsskrifstofur sem hafa sýnt verkefninu áhuga. Samráð verður við þá umsækjendur sem veljast til verkefnisins um hvers konar fyrirtæki og starfsumhverfi hentar þeim best. Fyrirtækin sem taka að sér starfsnema með þessum hætti gera kröfu um að viðkomandi vinni verkefni á vegum þeirra en einnig verður rætt við þá sem veita starfsþjálfun um að aðstoða starfsnemana við að komast í sambönd og að koma eigin verkefni á framfæri. Það er því kostur ef viðkomandi einstaklingar eru þegar umboðsmenn fyrir íslensk tónlistarverkefni.
Áhugasamir sækja um með því að senda póst á tomas@icelandmusic.is. Það sem þarf að fylgja tölvupóstinum er:
- Yfirlýsing umsækjanda um hvers vegna þeir hafi áhuga á að 10 vikna starfsþjálfun í Bretlandi sem tengist umboðsmennsku og hvað þeir vonist eftir að komi út úr dvölinni.
- Ferilskrá þar sem menntun, starfsreynsla, reynsla úr tónlistargeiranum og fleira sem umsækjandi vill koma á framfæri er tilgreint.
- Meðmælabréf frá aðilum sem þekkja vel til starfa viðkomandi í tónlistargeiranum.
Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti laugardaginn 1. september. Þeim sem koma til greina verður boðið í viðtal um miðjan septembermánuð. Ákvörðun mun liggja fyrir í lok septembermánaðar. ÚTÓN mun ásamt þátttakendum finna út með mótttökuaðilanum hentugan tíma til að uppfylla 10 vikna starfsnámið á tímabilinu 1. október 2012 – 31. maí 2013.
Nánari upplýsingar veitir Tómas Young á tomas@icelandmusic.is eða í síma 777 5532.