Umsóknarfrestur á Berlin Music Week á næsta leyti

329.01 Logo_sw_RZ

06.06.2012

Berlin Music Week er showcase hátíð sem fer fram dagana 5.-9. september í Þýskalandi. Hljómsveitir og tónlistarmenn geta sótt um að spila á hátíðinni og þá er sérstakt ‘Early Bird’-verð fyrir þá sem vilja sækja hátíðina.

Berlin Music Week Club Festival fer fram á þekktum tónleikastöðum s.s. Lido, Magnet, Comet, Astra, Arena, Badeschiff, Glashaus, Festsaal Kreuzberg og Postbahnhof. Viðburðirnir Berlin Festival, Club Xberg, Clubnacht og Transmediale ICAS Suite sameinast nú undir nafninu Berlin Music Week.

Þá mun Berlin Music Week ráðstefnan, Word on Sound, fara fram á sama svæði dagana 5.-7. september.

Fyrir þá sem vilja sækja hátíðina og ráðstefnuna heim geta fengið miðann á 88 evrur á ‘Early Bird’ verði HÉR. Umsóknarfrestur til að fá þetta afsláttarverð er til 15. júní.

Hljómsveitir og tónlistarmenn sem vilja koma fram á Berlin Music Week geta sótt um til og með 15. júní HÉR.

Deila |