ÚTÓN

Útflutningssjóður íslenskrar tónlistar tekur til starfa
Í stjórn sjóðsins sitja þau Ragnhildur Gísladóttir formaður, Sigtryggur Baldursson, fyrir hönd ÚTÓN, og Kamilla Ingibergsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri Iceland Airwaves. Varamenn eru þau Árni Heimir Ingólfsson, Tómas Young og Margrét Örnólfsdóttir.

Útflutningssjóður íslenskrar tónlistar starfar skv. reglum samþykktum af mennta- og menningarmálaráðherra þann 5. febrúar 2013. Hlutverk útflutningssjóðs íslenskrar tónlistar er að styrkja íslenskt tónlistarfólk við að koma tónlist sinni til stærri áheyrendahóps, á stærri markaði og auka möguleika þess á velgengni utan Íslands. Með sjóðnum verður til aukin fjárhagsaðstoð til tónlistarfólks á tónleikaferðalögum, aukin aðstoð til tónlistarfólks við þróun verkefna, aukin tækifæri til að komast á erlendar tónlistarhátíðir og auknir möguleikar skapast á tengslamyndun.

Ísland er afar lítill markaður. Mikilvægt er að auðvelda íslensku tónlistarfólki að koma tónlist sinni á framfæri sem víðast. Sú reynsla, þekking og sambönd sem skapast hafa innan ÚTÓN verða nýtt til að aðstoða tónlistarfólk í viðleitni sinni til að ná inn á stærri markaði.

Útflutningssjóður mun, með aðstoð reynslu- og kunnáttufólks, gera tónlistarfólki betur kleift að þróa og fullvinna verkefni sín, aðstoða það við tónleikaferðalög og aðra markaðssetningu.

Úthlutunarreglur og umsóknareyðublöð eru að finna hér.

Tilboð á The Great Escape fyrir íslenskt bransafólk
Hátíðin fer fram daga 16.-18. maí næstkomandi en nánari upplýsingar um hátíðina eru að finna hér. Á bransahluta hátíðarinnar má finna ýmsar áhugaverðar hringborðsumræður, fyrirlestra og tengslamyndunartækifæri.

Til að fá afslátt af miðakaupum, smelltu hér.

Tilboð fyrir íslenskt bransafólk á PrimaveraPro
Primavera Sound-hátíðin er haldin árlega í Barcelona á Spáni, í ár er hún haldin 22.-26. maí. Hátíðin hefur á undanförum árum bætt við sérstökum ráðstefnu og tengslamyndunarhluta við hátíðina sem kallaður er Primavera Pro.

Nánari upplýsingar um PrimaveraPro og tilboð til íslenskra aðila.

187 tónleikar íslenskra tónlistarmanna erlendis í marsmánuði
ÚTÓN heldur úti tveimur vefsíðum, einni á íslensku, uton.is, sem er hugsuð sem upplýsingarsíða fyrir íslenska tónlistarmenn og fagfólk en einnig icelandmusic.is, sem er á ensku og veitir upplýsingar um ýmislegt í sambandi við íslenska tónlist og er hugsuð fyrir erlenda aðila sem vilja kynna sér ýmsar hliðar íslensks tónlistarlífs, fréttir af íslenskum tónlistarmönnum og athöfnum þeirra á erlendri grundu, upplýsingar um íslenskar tónlistarhátíðir og tónleika islenskra tónlistarmanna erlendis.

Nú er svo komið að nýtt met hefur verið sett í tónleikahaldi íslenskra tónlistarmanna á erlendri grundu og í marsmánuði eru fyrirhugaðir 187 tónleikar með íslenskum flytjendum erlendis og þá eru ekki taldir tónleikar þar sem íslenskir óperusöngvarar eru að syngja í tónleikahúsum þar sem þeir eru ráðnir og fleira slíkt heldur aðallega flutningur á frumsamdri tónlist erlendis. Hvetjum við alla til að kíkja á vefsíðuna og kynna sér vefsíðuna.

Listi yfir tónleika íslenskra tónlistarmanna erlendis.

Glærur frá fræðslukvöldi um bókara og tónleikaferðalög
Þann 19. febrúar var haldið fræðslukvöld í Norræna húsinu um bókara hljómsveita og tónleikaferðalög. Á fræðslukvöldinu var leitast við að svara spurningum svo sem hvernig finna hljómsveitir sér bókara, hversu mikið fá bókarar greitt af innkomu tónleika erlendis, hvernig samkomulag gera hljómsveitir við þá og hvað ber að forðast þegar samið er við bókara, á hvaða tímapunkti þurfa hljómsveitir að fá sér bókara, geta hljómsveitir séð um bókanir á tónleikum sjálfar og svo framvegis.

Á meðal fyrirlesara var Rob Challice en Rob er mikill reynslubolti sem hefur starfað sem bókari, tónleikahaldari og hátíðarhaldari í meira en 27 ár. Hann er einn af stofnendum Coda Agencybókunarskrifstofunnar í London en hún var stofnuð árið 2002. Skrifstofan bókar tónleika fyrir hljómsveitir aðallega í Evrópu. Hljómsveitir sem Rob bókar eru m.a. Billy Bragg, Bon Iver, Beirut, Yo La Tengo, Stornoway, tUnE-yArDs, Sufjan Stevens, Warpaint, Sóley and Kings Of Convenience. Rob sagði frá sinni vinnu með hljómsveitunum sem hann starfar með, útskýrði hvernig hljómsveitir og bókarar byrja að vinna saman.

Að lokum var hringborðsumræða sem Sigtryggur Baldursson, framkvæmdastjóri ÚTÓN, stýrði. Á meðal gesta í hringborðsumræðunum voru Sunna Gunnlaugsdóttir, djasspíanisti, Sóley Stefánsdóttir, tónlistarkona og Rob Challice.

Glærur frá Sigtryggi Baldurssyni og Rob Challice

Fræðslukvöld um bókara (e. booking agents) og tónleikaferðalög
Þriðjudaginn 19. febrúar kl. 19:30 verður haldið fræðslukvöld í Norræna húsinu um bókara hljómsveita og tónleikaferðalög.

Á fræðslukvöldinu verður leitast við að svara spurningum svo sem hvernig finna hljómsveitir sér bókara, hversu mikið fá bókarar greitt af innkomu tónleika erlendis, hvernig samkomulag gera hljómsveitir við þá og hvað ber að forðast þegar samið er við bókara, á hvaða tímapunkti þurfa hljómsveitir að fá sér bókara, geta hljómsveitir séð um bókanir á tónleikum sjálfar og svo framvegis.

Á meðal fyrirlesara verður Rob Challice en Rob er mikill reynslubolti sem hefur starfað sem bókari, tónleikahaldari og hátíðarhaldari í meira en 27 ár. Hann er einn af stofnendum Coda Agency bókunarskrifstofunnar í London en hún var stofnuð árið 2002. Skrifstofan bókar tónleika fyrir hljómsveitir aðallega í Evrópu. Hljómsveitir sem Rob bókar eru m.a. Billy Bragg, Bon Iver, Beirut, Yo La Tengo, Stornoway, tUnE-yArDs, Sufjan Stevens, Warpaint, Sóley and Kings Of Convenience. Rob mun segja frá sinni vinnu með hljómsveitunum sem hann starfar með, útskýra hvernig hljómsveitir verða sér úti um bókara og almennt ausa úr sínum viskubrunni.

Þá verður hringborðsumræða sem Sigtryggur Baldursson, framkvæmdastjóri ÚTÓN, stýrir. Á meðal gesta í hringborðsumræðunum verður Hallur Kr. Jónsson meðlimur hljómsveitarinnar Bloodgroup og Sóley Stefánsdóttir tónlistarkona.

Námskeiðsgjald er 3000 krónur og 2000 krónur fyrir félagsmenn FTT, TÍ, FÍH, FÍT og FHF. Innifalið í námskeiðsgjaldi eru námskeiðsgögn og létt hressing. Nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram. Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á tomas@icelandmusic.is.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Young í síma 527 9999.

Tengslamyndunarfundur á Myrkum músíkdögum 2013
Vinsamlega tilkynnið komu ykkar hjá Tómas Young, tomas@icelandmusic.is, eða í síma 527 9999, fyrir kl. 12 föstudaginn 1. febrúar.

Erlendir blaðamenn og listrænir stjórnendur sem verða á staðnum:

Faith Wilson

Almannatengill: Faith Wilson Arts Publicity (UK)

Fiona Talkington

Útvarpskona á BBC (UK)

Lyndon Jones

Úvarpsmaður á BBC o.fl. (UK)

Hilary Finch

The Times (UK)

Henk Heuvelmans

Listrænn stjórnandi á Gaudeamus Muziek Week (NL)

Mark Delaere

Listrænn stjórnandi Transit Festival (BE)

Joost Fonteyne

Listrænn stjórnandi Festival van Vlaanderen (BE)

Bert Palinckx

Listrænn stjórnandi November Music (NL)

Graham Mckenzie (forfallast)

Listrænn stjórnandi Huddersfield Contemporary Music Festival (UK)

Roland Spekle

Listrænn stjórnandi November Music (NL)

Andreas Engström

Blaðamaður: Nutida Musik (SE), World New Music Magazine (UK)

Lars Petter Hagen

Listrænn stjórnandi Ultima Festival (NO)

Vinnustofa um Músíkmýtur
Á kerfisbundinn hátt eru mýtur ræddar og krufin eru til mergjar mörg mál sem eru á gráu svæði eða ekki ríkir sameiginlegur skilningur á. Vinnustofan er ætluð tónlistarfólki, fagaðilum sem bera ábyrgð á framleiðslu hugverka sem að einhverju leiti byggja á notkun tónlistar, og öðrum sem málið varðar.

Efni vinnustofunnar er ætlað á faglegan og skemmtilegan hátt að uppfræða alla sem vilja öðlast dýpri skilning á réttindum tón- og textahöfunda auk flytjenda og útgefenda. Þetta er tilvalinn vettvangur fyrir tónlistarmenn, viðskiptastjóra auglýsingastofa, auglýsingaframleiðendur, kvikmyndaframleiðendur, framleiðendur sjónvarpsefnis og framleiðenda netefnis þar sem fræðast má um hvaða notkun er leyfileg, hver ekki og hvernig fengið er leyfi fyrir löglegri notkun.

Í hópi þátttakenda verða einstaklingar sem semja tónlist og þeir aðilar sem sérhæfa sig í að útvega leyfi til notkunar á bæði íslenskri og erlendri tónlist.

Músíkmýtur fara fram 6. febrúar frá 13:00-18:00 í Hörpu.

Hér má lesa meira um viðburðinn.

Ýlir tónlistarsjóður Hörpu – umsóknarfrestur að renna út
Umsóknarferlið er opið fyrir tónlistarmenn, hljómsveitir, hópa og félagasamtök. Stjórn sjóðsins vill hvetja tónlistarmenn, sem og aðra sem hyggja á tónleikahald í Hörpu, úr öllum geirum tónlistar til að kynna sér umsóknarferlið og þá möguleika sem stuðningur sjóðsins getur boðið upp á við tónleikahald í tónlistarhúsinu.   Ýlir – Tónlistarsjóður Hörpu fyrir ungt fólk hefur það að markmiði að styðja ungt tónlistarfólk og veita því tækifæri til að koma fram í húsinu.

Sjóðurinn einsetur sér að styðja við verkefni af ólíkum toga og vill þannig ýta undir fjölbreytt tónlistarlíf í Hörpu. Meðal þeirra þátta sem stjórn sjóðsins lítur til í afgreiðslu umsókna er að verknið nýti möguleika Hörpu sem tónlistarhúss og hafi möguleika á að höfða til nýrra áheyrandahópa.  Tónlistarsjóður Hörpu fyrir ungt fólk, sem síðar fékk nafnið Ýlir, var stofnaður í lok árs 2010 þegar Menningarsjóði SPRON var slitið með úthlutun til ýmissa mennta-, menningar- og góðgerðarmála.

Alls var 80 milljónir króna varið til stofnunar þessa tónlistarsjóðs sem ætlaður er til þess að veita ungu og efnilegu tónlistarfólki tækifæri á að koma fram í hinu nýja tónlistarhúsi, Hörpunni um ókomin ár.  Fyrsta verkefni sjóðsins fór fram í mars á þessu ári þegar sjóðurinn studdi við Nótuna, uppskeruhátíð tónlistarskóla sem fram fóru í Hörpu.   Frekari upplýsingar um umsóknarferlið og umsóknareyðublað má finna á nýopnaðri vefsíðu sjóðsins; www.ylir.is.

Umsóknarfrestur er til 20. janúar.

ÚTÓN auglýsir eftir umsóknum fyrir Made in Iceland 6 safndiskinn
Verkefnið felur í sér gerð safndisks sem dreift er til yfir 600 útvarpsstöðva og bloggara í Bandaríkjunum með áherslu á háskólaútvarpsstöðvar. Verkefnið tengist jafnframt sérstakri kynningu til þeirra sem velja tónlist í auglýsingar og kvikmyndir í Los Angeles. Þá er safndiskurinn einnig markaðssettur á heimasíðu ÚTÓN sem sinnir kynningu á íslenskri tónlist út á við, www.icelandmusic.is, og á samfélagsmiðlunum.

Lögð er áhersla á að kynna lög af nýjum útgáfum á Íslandi sem ætlaðar eru fyrir alþjóðlega útgáfu og komið hafa út seinni hluta ársins 2012 eða eru væntanlegar á markað fyrri hluta árs 2013. Stefnt er að því safndiskurinn innihaldi lög með 15–20 listamönnum sem endurspegla fjölbreytileika og gæði íslenskrar tónlistar um þessar mundir.

Þátttaka í verkefninu er tónlistarmönnum algjörlega að kostnaðarlausu en eðli verkefnisins vegna eru þátttakendum sett nokkur skilyrði:

- Verða að hafa gefið út plötu eftir 1. júní 2012 eða vera með plötuútgáfu í bígerð fyrir 1. júní 2013 nk. á Íslandi og erlendis.

- Hafa dreifingarsamning á Bandaríkjamarkaði. Stafræn dreifing gildir svo framarlega sem lagið sem sent er inn sé fáanlegt á iTunes í Bandaríkjunum. Lagið verður að vera fáanlegt á iTunes í Bandaríkjunum, hvort sem platan sem inniheldur lagið er komin út eða ekki.

Athugið að umsóknir sem uppfylla ekki ofangreind skilyrði verða ekki teknar til skoðunar.

Umsóknarferlið er þannig:

Fylla þarf út umsóknareyðublað sem er að finna hér: Made in Iceland 6 umsókn. Umsóknina skal senda ásamt MP3 og WAV útgáfu af lagi og ljósmynd í hárri upplausn á umsjónarmann verkefnisins á netfangið tomas@icelandmusic.is. Við mælum með heimasíðunni www.wetransfer.com til að senda efnið. Athugið að hver listamaður getur aðeins sent eitt lag/eina umsókn.

Stefnt er að því að svara umsóknum fyrir 15. febrúar næstkomandi.

Lögin eru valin af þremur samstarfsaðilum ÚTÓN í Bandaríkjunum sem jafnframt munu annast kynningu disksins vestra. Samstarfsaðilarnir meta hvert lag með tilliti til þess hversu líklegt það er til að ná árangri á háskólaútvarpsstöðvum annars vegar og hjá tónlistarstjórnendum (e. music supervisors) hins vegar.

Samstarfsaðilarnir eru:

- Planetary Group, útvarpsplöggarar

- The Talent House, sala á tónlist í myndefni

-Lanette Phillips, framleiðandi kvikmyndamyndbanda og gestgjafi á kynningarviðburði sem haldinn er á vegum verkefnsins í Los Angeles.

Umsóknarfrestur er til og með 24. janúar.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Young, tomas@icelandmusic.is, s. 527 9999.